Monday, July 30, 2007

Leikur á þriðjudaginn 31. júlí kl. 19.30 - NÝ STAÐSETNING

Sælir piltar, næsti leikur Moppunnar er gegn Metró á GERVIGRASINU Í MOSÓ kl. 19.30!

Mæting 19!

Tilkynningarskylda eins og venjulega.

ATH! Leikurinn verður á GERVIGRASINU Í MOSÓ!!!!!!!
Sami tími, annar völlur!

Er Það Skilið!?!?

Thursday, July 19, 2007

Leikur mánudaginn 23. júlí

23. Júl. 19:00 - FC Fame-FC Moppa Tungubakkar (B)

Melda sig í commentum

Wednesday, July 11, 2007

Leikur 16. júlí!

Á mánudaginn 16. júlí kl. 19 leikur Moppan við Fc CCCP í fyrstu umferð bikarkeppni utandeildarinnar og fer leikurinn fram á Tungubökkum.

Hér á síðunni gefst nú tækifæri til þess að tilkynna það hvort menn mæti í þennan leik eður ei. Það skal gera í þar til gerðu kommentakerfi hér fyrir neðan.

Mæting er á Tungubakka kl. 18.30 og ekki gleyma góða skapinu.

Tuesday, July 10, 2007

Æfing í kvöld!

Æfing í kvöld, hittumst við Digranesskóla kl. 20.40!!!


Frábært veður, heitar gellur og ííííííísssskaldur Viking Gylltur!!



(mynd og texti hafa ekkert með æfingu Moppunnar að gera)

Monday, July 09, 2007

Moppan vs. Dragon

Það voru 15 Moppumenn sem mættu galvaskir til leiks á Fylkisvellinn síðastliðinn sunnudag. Byrjunarliðið var Sigurður í markinu. Vörn: Höskuldur, Kjartan, Pálmi og Gústi. Miðja: Teddi, Maggi, Tommi, Doddi og Ásgeir. Bjössi var svo einn frammi. Á bekknum voru þeir Alli, Valdi, Ketill og Arnar.
Aldrei þessu vant þá byrjaði Moppan mun betur en andstæðingurinn. Virtist það gefa góða raun að hafa þrjá vel spilandi miðjumenn inn á í einu en þrátt fyrir að flott spil þá náðum við ekki að skapa afgerandi færi, fyrir utan að Valdi vildi ekki skalla boltann inn því að hann var svo linur. Moppan náði svo forskoti með marki frá Bjössa eftir fallegt spil Moppunar og góða stungusendingu frá Valda. Eftir þetta bökkuðu Moppumenn kannski um of og dragon náði að pressa á okkur það sem eftir lifði hálfleiks. Dragon byrjaði seinni hálfleik með boltann og annað eins mark hef ég aldrei séð. Mætti halda að við værum í 7.flokki að bora í nefið og með puttann upp í rassgatinu. Þeir gefa upp hægri kanntinn strax eftir miðju og þaðan kemur sending á þann sem gaf upprunalegu sendinguna og hann skallar inn. Alveg glatað mark.
Eftir þetta pressa þeir en skapa sér enginn dauðafæri. Við komust þá aftur yfir eftir fína sendingu frá Arnari á Tomma sem skallaði hann inn. Aðeins menn undir 170 cm geta skorað skallamörk hjá Moppunni. Moppan eins og alltaf duttu alltof langt aftur og dæmin sanna það að við kunnum ekki að halda forskoti. Þeir jafna svo þegar 5 sek eru eftir þegar Bjössi er kominn í markið og ef ég væri ekki dvergur hefði ég varið það.
Svekkjandi úrslit en við erum orðnir eins og KR og þiggjum öll stig í botnbaráttunni. Þessi leikur var þá svona 1000 sinnum skárri en sá síðasti, varðandi spil baráttu og skemmtanagildi. Höldum þessu áfram. Margir áttu fínan leik en persónulega fannst mér Höskuldur bestur í leiknum. Kom boltanum vel frá sér og góð barátta og vinnsla í stráknum. Næsti leikur er við CCP í bikarnum þann 16. júlí kl. 19 á Pungbökkum.
Kv,
Fyrirliðinn