Monday, June 30, 2008

Fc Moppa - Hjörleifur !

Staður : Fagrilundur

Stund : Miðvikudaginn 2. júlí. Kl. 21:00 ( Mæting 20:45 )


Vinsamlega meldið ykkur og vonandi að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Wednesday, June 25, 2008

æfing á fimmtudag

Endilega að nýta góða veðrið sem er þessa daga og spila smá fótbolta, æfing eftir leik á fimmtudag í safamýrinni kl. 21:00 nema að það fari í framlengingu og vító þá eftir það!

meldið ykkur hér fyrir neðan!

kv. Lolli

Wednesday, June 18, 2008

Leikur á sunnudag!

Leikur gegn Fc Fame á sunnudaginn 22. júní kl. 18:00 á framvellinum.
Mætum nú allir sem einn og tökum þennan leik!
osssssoooookommmmmaaaassssooooooooo!

meldið ykkur hér í commentakerfinu.

kv. Lolli

Æfing

Er ekki kominn tími á æfingu!
Stefnum á æfingu eftir leik annað kvöld fimmtudaginn 19. júní , kl. 21:00 svo framarlega að hann fari ekki í framlengingu og vító!
Sami staður (sparkvöllurinn við framvöllinn)
meldið ykkur hér í commentakerfinu!

kv. Lolli

Thursday, June 12, 2008

Nings 1-0 Fc Moppa

Ekki voru þetta nú glæsileg tilþrif á vellinum, er kannski svolítið litaður af EM þessa dagana en sennilega hefur dómari leiksins þó staðið uppúr með stórkostlegum tilþrifum á köflum. Það var eins og maðurinn væri bundinn við miðjuhringinn, dæmdi rangstöður og innköst eftir pöntunum en dæmdi ekki á tveggjafótatæklingar og bakhrindingar!
Jæja nóg um hann!
Þeir sem mættu til leiks voru Einar Örugglega, Loftu, Pálmi, gústi, Siggi H., Bjössi, Jónas, Jón, Hjalti, Pálmi, Alli, Maggi, Palli, Binni og Ásgeir.
Liðinu var þannig stilltu upp, Einar í marki, Gústi og Siggi í bakvörðum, Pálmi og Loftur í miðverðinum, palli og jón á köntunum, Hjalti, Jónas og Maggi á miðjunni og Ásgeir frammi.
Eins og áður segir þá er maður svolítið litaður af EM þessa dagana og því leit spilið ekkert sérstaklega vel út til að byrja með, þó tókst okkur að skapa hættulegri færi í fyrrihálfleik, Antílópan Ásgeir einfætti átti hættulegasta færið þegar hann stal boltanum af varnarmanni og komst einn á móti markmanni, en með boltann á hægri fæti var bara einn möguleiki og það var að sparka eins og stelpa og markmaðurinn varði örugglega.
Einhver færi áttum við í viðbót sem fóru forgörðum. Loftur átti sennilega móment leiksins þegar hann náði boltanum af sóknarmanni og stoppaði boltann út við hliðarlínu en dómarinn dæmdi innkast þó að talsverður spölur væri enn í hliðarlínuna. Loftur átti þá þessa fleygu setningu "Hreyfðu á þér helvítist rassgatið dómari" og fékk gula spjaldið fyrir.
Annars átti Pálmi klúður leiksins þegar hann kom sér í vandræði ætlaði að gefa til baka á Loft en sóknarmaður komst inní sendinguna og skoraði örugglega einn á móti Einari. 1-0
Þrátt fyrir þessi mistök þá var þetta kombó Loftur og Pálmi í Miðverðinu býsna seigt og fengu Nings ekki svo mörg færi í leiknum.
Seinni hálfleikur verður helst minnst fyrir þær mýmörgu sóknir moppunnar sem ekki tókst að nýta og tilhneigingu dómarans til að láta leikinn fljóta.... þ.e. dæma helst ekki á ljót brot.
Þá er ekki úr vegi að taka Valda sér til fyrirmyndar sem mætti og hitaði upp allan seinni hálfleik þó að hann mætti ekki spila vegna leikbanns.
Þrátt fyrir frekar dapran leik þá vorum við langt frá því að vera verra liðið og hefðum leikandi getað jafnað og unnið þennan leik, en þetta datt ekki fyrir okkur í þetta skiptið!
Það er engu að síður leiðinlegt að þurfa að minnast á það enn einu sinni að þrátt fyrir að vera tæplega 40 á skrá þá erum við rétt að skrapa í lið!
Næsti leikur er 22. Jún. kl. 18:00 gegn Fc Fame á framvellinum.
Reynum að hafa æfingu í næstu viku þar sem við getum tekið vel á því og farið yfir þessi helstu atriði sem eru að verða okkur að falli í leikjunum...... þrekleysi, bjórleysi og fullt af öðrum leysum!

kv. Lolli

Monday, June 09, 2008

Leikur gegn Nings á miðvikudag

Annar leikur tímabilsins í deildinni er miðvikudaginn 11. Júní kl. 19:00 gegn Nings á Framvellinum.
Sýnum nú tennurnar og mætum dýrvitlausir í leikinn!

meldið ykkur nú hér fyrir neðan eins og venjulega!

mæting er 15 mínútum fyrir leik!

kv. Lolli

Monday, June 02, 2008

Æfing á miðvikudaginn

Leik Moppunnar og Vatnsberanna sem átti að vera á miðvikudaginn hefur verið frestað um óákveðinn tíma og því munum við hafa æfingu í staðinn.

ÆFING.
Staður: Sparkvöllur Safamýri.
Dags: miðvikudagurinn 4. júní
Kl: 20.30


Melda mætingu að neðan, ef við náum ekki 10 manns þá vöknar manni um augun.